Veisluís í páskabúningi með makkarónubotni og karamellusósu að hætti GRGS
Veisluísinn er kominn aftur í verslanir! Hafðu páskadesertinn einfaldan og bragðgóðan – Páskarnir eru til að njóta, þetta þarf ekki að vera flókið.
INNIHALDSLÝSING
- 130 g makkarónukökur, muldar
- 100 g smjör, bráðið
- 1 pakki (1,3L) Veisluís frá Emmessís með eplum, kanil og kökukurli
- 250 ml rjómi, þeyttur
- Karamellu íssósa frá Emmessís
- Súkkulaði að eigin vali, saxað
AÐFERÐ
1. | Blandið bræddu smjöri og muldum makkarónum vel saman. |
2. | Látið ís í form, gott er að nota form sem er annaðhvort úr siliconi svo auðvelt sé að ná honum úr forminu eða láta plastfilmu í formið áður en ísinn er settur í. Látið síðan makkarónumulninginn yfir ísinn og þrýstið honum lítillega niður í ísinn. Látið í frysti í að minnsta kosti klukkustund. |
3. | Takið úr frysti og látið ískökurnar á diska. Látið rjóma á toppinn með sprautustúti, hellið smá karamellusósu yfir og stráið súkkulaði yfir allt. |