Fréttir Nýtt Vörur

Grikk Eða Gott? Við Völdum Gott.

Hrekkjavakan í ár er bleik. Hrekkjavökublómið er komið í frystinn: ítalskur tyggjógelato með sykurpúðum. Skelfilega gott.

Bragð sem þú manst eftir
Tyggjóbragðið sem þú þekkir vel  með sykurpúðum í hverjum bita. Sætt, bleikt og nákvæmlega jafn skemmtilegt og það lítur út fyrir að vera.

Fyrsta blómið af mörgum
Hrekkjavökublómið er fyrsta varan í BLÓM, nýjum vöruflokki frá Emmessís. Fleiri blóm eru á leiðinni, en þetta fæst aðeins í kringum hrekkjavökuna.

Fullkomið í hrekkjavökupartýið, eftir grikk-eða-gott gönguna eða á sófanum með hryllingsmynd.

Gríptu kassa í næstu verslun áður en hann hverfur. 🎃