Fréttir

Alvöru rjómaís — engar málamiðlanir

Hjá Emmessís gerum við hlutina einfaldlega á réttan hátt. Frá árinu 1960 höfum við notað rjóma í ísgerð okkar, ekki herta jurtafitu. Smjör er lykilhráefni í ísnum okkar, enda annað geymsluform rjóma og hluti af þeirri hefð sem skilgreinir alvöru rjómaís.

Í framleiðslunni leggjum við áherslu á gegnsæi og vandað hráefnaval. Helstu innihaldsefni í rjómaísnum okkar eru vatn og smjör, ásamt rjóma, sykri og mjólkurafurðum sem gefa ísnum rétta áferð og bragð.

Við fylgjum ströngum kröfum sem gerðar eru til rjómaíss samkvæmt íslenskri reglugerð og erum meðal fárra framleiðenda sem uppfylla þær að fullu. En við förum enn lengra. EMMESSÍS er vottað samkvæmt FSSC 22000 / ISO 22000, sem staðfestir að við uppfyllum alþjóðlega staðla um matvælaöryggi og rekjanleika, með ströngu gæðaeftirliti á öllum stigum framleiðslu.

Það þýðir að þegar við segjum rjómaís, þá meinum við það!

Allt sem við gerum byggir á einfaldri hugsun: að velja raunveruleg hráefni og standa við það sem við segjum.