Pekanhnetudraumur Hagen-Dazs
Með Til hamingju pekanhnetum og Saltkaramelluís frá Häagen-Dazs. Djúsí og góð kaka sem allir verða að prófa! Karamellubráðin yfir pekanhneturnar setur algjörlega punktinn yfir i-ið og fullkomnar þessa köku.
Brownie kaka uppskrift
- 80 gr smjör
- 100 g suðusúkkulaði
- 270 g sykur
- 3 egg
- 100 g hveiti
- ½ tsk. salt
- 2 tsk. vanilludropar
- Hitið ofninn í 175°C.
- Bræðið saman suðusúkkulaði og smjör við vægan hita og leyfið hitanum næst að rjúka úr á meðan annað er undirbúið.
- Þeytið saman egg og sykur þar til létt og ljóst.
- Hellið súkkulaðiblöndunni saman við eggjablönduna, bætið vanilludropum í og hrærið saman.
- Sáldrið þurrefnunum saman við, hrærið rólega og skafið niður á milli þar til vel blandað.
- Smyrjið ferkantað form (um 23x23cm) eða spreyið með matarolíu og leggið bökunarpappír í botninn og upp hliðarnar (auðveldara að ná henni úr þannig og skera í bita).
- Hellið deiginu í og bakið í 20 mínútur, útbúið karamellubráðina á meðan.
Pekanhnetu karamellubráð
- 100 g Til hamingju pekanhnetur (saxaðar)
- 70 g púðursykur
- 80 g smjör
- 3 msk. rjómi
- Saltkaramelluís frá Häagen-Dazs (berið fram með kökunni)
- Saxið pekanhneturnar og geymið í skál.
- Setjið púðursykur, rjóma og smjör í pott og bræðið, leyfið að sjóða í um eina mínútu og hrærið vel í á meðan, geymið.
- Þegar kakan hefur verið í ofninum í 20 mínútur má taka hana út, strá pekanhnetunum yfir og því næst hella karamellubráðinni jafnt yfir allt.
- Bakið að nýju í 10-12 mínútur eða þar til karamellan fer aðeins að dökkna í köntunum.
- Kælið aðeins og skerið niður í bita, njótið með saltkaramelluís frá Hagendaas. Kökuna má einnig kæla og njóta þannig, hún er góð hvernig sem er!