Skilmálar
Emmessís ehf. – Bitruhálsi 1 – 110 Reykjavík – Sími 520 4200
Útkeyrsla á höfuðborgarsvæðinu
Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 15:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag.
Allar pantanir sem eru yfir 20.000 kr. án vsk. eru sendar á kostnað Emmessís. Pantanir utan akstursáætlun og/eða ná ekki tilsettu lágmarki, leggst 7.000 kr. afgreiðslugjald á pöntunina
Útkeyrsla á Akureyri
Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 13:00 til að vera afgreiddar samdægurs innan Akureyrar. Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 15:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag.
Allar pantanir sem eru yfir 20.000 kr. án vsk. eru sendar á kostnað Emmessís. Ef pöntun nær ekki tilsettu lágmarki, leggst 7.000 kr. afgreiðslugjald á pöntunina
Útkeyrsla á landsbyggðinni
Emmessís er með reglulega akstursáætlun, pantanir þar sem óskað er eftir afhendingu utan akstursáætlunar eru sendar með Flytjanda. Allar pantanir sem eru yfir 40.000 kr. án vsk. eru sendar á kostnað Emmessís ehf. Vara er afhent í næstu vöruafgreiðslu Flytjanda. Ef pöntun nær ekki tilsettu lágmarki (40.000kr), greiðir kaupandi fyrir sendingarkostnað auk 7.000 kr. afgreiðslugjalds.
Allar pantanir þurfa að lágmarki að berast daginn fyrir brottför.
Sóttar pantanir
Um sóttar pantanir í vöruhús gilda sömu skilmálar og um aðrar vöruafhendingar, þ.e. pantanir verða að berast fyrir kl 12:00. annars fyrir kl. 15:00 næsta virka dag fyrir sótta pöntun.
Þurfi viðskiptavinur að fá vörur fyrr er hægt að panta fyrir kl. 10:00 á afhendingardegi en þá bætist við 3.500 kr. flýtiafgreiðslugjald. Vöruafhending fer almennt ekki fram á laugardögum, sunnudögum og á lögbundnum frídögum.
Afhendingar á vörum fara fram á virkum dögum á tímabilinu milli kl. 8:00 – 16:00.
Ef viðskiptavinur er í vanskilum, þarf greiðsla útistandandi reikninga að berast fyrir kl. 11:00 daginn fyrir skilgreindan afhendingardag til að Emmessís geti afhent viðskiptavini vörur.
Allar afhendingar fyrir utan opnunartíma Emmessís þurfa að vera að lágmarki 60.000 kr og leggst 20.000kr afgreiðslugjald á pöntunina. Sé óskað eftir útkeyrslu utan opnunartíma Emmessís, leggst 20.000kr útkeyrslugjald ofan á upphæðina.
Vöruskil
Ef skila á vöru (hver sem ástæðan er), skal kaupandi koma athugasemdum til skila til starfsmanna Emmessís innan 24 klst frá móttöku vöru.
Gallaðar eða rangt afgreiddar vörur utan höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar skulu endursendar með Flytjanda. Kreditreikningur er gerður þegar varan kemur í hús.
Hafi vara skemmst í meðhöndlun starfsmanna þriðja aðila (t.d. flutningsaðila) eða misræmi er á milli fjölda afhentra vara og vörufylgisskjali, þarf móttakandi vöru að gera athugasemd við flutningsaðila við vöruafhendingu.
Reikningsviðskipti
Hafi verið samið um annan greiðslumáta en staðgreiðslu eða greiðslur með greiðslukorti skal Emmessís senda út reikning fyrir selda vöru. Gjalddagi reiknings fer eftir viðskiptaskilmálum á milli Emmessís og viðskipavina sinna. Reiknast dráttarvextir á reikninga sem greiddir eru eftir eindaga í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Við vanskil reikninga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast fjármálasviði Emmessís innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um..
Lög og varnarþing
Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa, samninga og eftir atvikum tilboð sem Emmessís gerir við viðskiptavini sína. Ágreining um framkvæmd samnings skulu Emmessís og viðskiptavinur leitast við að leysa með samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Heimilt er að vísa ágreiningi til gerðardóms ef báðir aðilar eru því samþykkir og skulu lög nr. 53/1989 um samningsbundna gerðardóma gilda um málsmeðferð fyrir gerðardómi.