Vinsamlegast hafið samband við okkur í síma 530 4200 eða sendið okkur línu [email protected]
Óopnaður frauðplastkassi heldur klökunum undir frostmarki í að minnsta kosti sólarhring, en það er háð því að hann sé lokaður frá afhendingu og þar til á að nota klakann.
Það fer eftir árstíma og hitastigi í rýminu hve lengi klakinn endist eftir að frauðplastkassinn hefur verið opnaður eða klakinn settur í annað ílát. Ágætt er að hella salti yfir ísmolana ef þeir eru notaðir til að kæla drykki í íláti en við það lækkar bræðslumark (e. melting temprature) þeirra og þeir endast lengur. Þá er gott að hafa rakt viskastykki við höndina til að þurrka af dósum og flöskum og koma í veg fyrir saltför á borðum.
Miðað er við að einn frauðplastkassi dugi til að fylla tvo bala af klökum.
Við mælum með 1 frauðplastkassa fyrir:
- 35 manns eingöngu til að kæla drykki.
- 45-55 manns eingöngu til að setja ofan í glös.
- 25 manns til að kæla drykki og setja ofan í glös.
Mulinn ís er yfirlett notaður í kokteila svo sem Mojito og Moscow Mule en hann er einnig hentugur til að kæla drykki í bala eða öðru íláti.